1.5.2008 | 21:47
Hundarnir mínir
Ég verð að segja að fyrir um tíu árum fékk ég þessa einstöku þörf að eignast hunda, það tók mig fjögur ár að sannfæra fjölskylduna um að við gætu ekki án hunda verið. Eftir að fjölskyldan varð alveg sannfærð um að við gætum ekki lifað án þess að eiga hunda þá var að finna tegund sem myndi henta okkur og passa inn í mynstrið.
Vitið að við fundum þessa einstöku hundategund sem heitir Weimaraner, þeir þurfa hreyfingu, þeir þurfa húsbændur, þeir þurfa einhverja sem þykir vænt um þá og einhverja sem stjórna þeim og fara með þá í veiðar eða eitthvað annað spennandi eins og sporun.
Athugasemdir
Hæ, flott bloggsíðan. Þetta eru sjálfsögðu fallegustu hundarnir í öllum heiminum.
Hlakka til að sjá þau fljótlega..
Sólarkveðjur frá Odense,
Eydís og Guðni
Eydís Ýr og Guðni Karl (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 16:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.